Sóti summits býður til þriggja daga fjallaskíðaveislu kringum páska 2023
Páskar eru eftirlætistími fjallaskíðafólks. Veðurfar er orðið stöðugra, dagsbirtan hefur tekið völd og snjóalög í norðri eru enn með besta móti. Enginn tími árs er betri til að skreppa í fjallaskíðaferð í Fljótin á Tröllaskaga. Sóti Summits býður snjóþyrstum skíðaköppum að njóta lífsins í þrjár nætur á Sóta Lodge og skíða undir leiðsögn reyndra fjallakappa í þrjá daga í bestu brekkunum norðanlands.
Bókaðu núna og eigðu eftirminnilega páska!
Við veitum personulega þjálfun og leiðsögn við allra hæfi, hvort sem þú ert að fara í þína fyrstu fjallaskíðaferð eða vilt auka við reynslu þína í góðra vina hópi. Við erum stolt af okkar leiðbeinendum, sem eru meðal vanasta fjallafólks landsins. Gestir okkar eru í öruggum höndum.
Þetta er frábært tækifæri til að njóta útivistar og upplifunar í einni fegurstu útivistarparadís landsins. Ferðast verður um fjöllin sem umlykja Fljótin og Siglufjörð, þar sem tækifæri gefst að spreyta sig í brekkum á öllum erfiðleikastigum. Þegar komið er á Sóta Lodge eftir góðan dag getur þú látið líða úr þér og slappa af – við sjáum um að þú njótir og nærist vel.
Fjallaskíði og frábært atlæti
Sóti Lodge hefur á undanförnum árum getið sér góðs orðs fyrir aðbúnað og þjónustu. Á hótelinu er boðið upp á smekklega innréttuð herbergi með salerni og sturtu. Aðgangur að Barðslaug í næsta húsi er innifalinn í verði námskeiðs, þar sem hægt er að slaka á í heitum potti og sánu. Endurnærandi flotstundir og vatnateygjur undir víðum norðurskautshimni tryggja að allir geti látið líða úr sér eftir átök dagsins.
Rómaður þriggja rétta kvöldverður að hætti Nicolasar, okkar frábæra kokks, slær botninn í dásamlega daga og vel útilátið morgunverðarhlaðborð hleður orkustöðvarnar að morgni dags. Heimagert hádegisnesti Nicolasar tryggir endingu og úthald í útivistinni.
Starfsfólk Sóta Lodge tryggir að öllum líði vel og notalega, en friðsældin í sveitinni tryggir góðan og endurnærandi nætursvefn.
Dagsetningar 2023
2.-5. apríl Pláss laus
5.-8. apríl (Skírdagur til laugardags) Pláss laus
Hægt er að bæta við skiðadögum, sé þess óskað
Einkaferð
- Viltu sérferð fyrir þig og/eða hópinn þinn?
Sendu okkur línu á info@sotisummits.is
Innifalið í verði
- Allar máltíðir meðan á dagskrá stendur (allt frá kvöldverði við komu til hádegisverðar á lokadegi)
- Leiðsögn faglærðs fjallaleiðsögumanns
- Snjóflóðabúnaður (bakpoki, skófla, stöng, ýlir)
- Gæðagisting á Sóta Lodge
- 2 x Après ski við heimkomu
- Aðgangur að Barðslaug, sundlauginni að Sólgörðum (aðeins nokkur skref frá Sóta Lodge)
- Flotstund og vatnateygjur
Hvað á að koma með
- Skíði (fjallaskíði eða splitboard) og búnað (skinn, brodda, stafi, hjálm, skíðagleraugu)
- hægt er að leigja úrvals Blizzard Zero G fjallaskíði gegnum Sóta Summits.
- Vind- og vatnsheldan jakka
- Vind- og vatnsheldar buxur
- Ullarnærföt
- Hanska
- Vatnsflösku
- Sólarvörn
- Litla sjúkratösku
- Inniskó
Verð: (Lágmarksfjöldi í námskeiðið er 8 manns)
- 129.900 isk á mann. Verð miðast við tvo í herbergi
- Verð fyrir einn í einstaklingsherbergi er 174.000 isk á mann
Þegar þú bókar gegnum hlekkinn hér til hliðar greiðir þú 20% óafturkræft staðfestingargjald til að festa bókunina. Greiða skal eftirstöðvar eigi síðar en tveimur vikum fyrir ferð.
Fyrir hverja er ferðin?
- Þessi ferð hentar sem eru öllum í góðu líkamlegu formi og hafa einhverja reynslu af skíðamennsku. Leiðsögumaður mun sjá til þess að gönguhraðinn og brekkur henti öllum í hópnum.
Dæmi um mögulega dagskrá (allar tímasetningar eru með fyrirvara)
Dagur 1
16:00 – 18:00: Mæting á Sóta Lodge, frjáls tími, sundlaug, sána og heitur pottur
17:30: Fundur með leiðsögumanni. Farið yfir komandi skíðadaga og búnað þátttakenda
19:30: Kvöldmatur
Dagur 2
08:00-10:00: Morgunmatur
10:00: Brottför (hádegismatur tekinn með í bakpoka)
10:30: Farið yfir búnað og hann prófaður (kennsla í öryggisþáttum: ýlaskoðun og stutt ýlaleit, notkun á snjóflóðastöng)
11:00: Haldið til fjalla. Fljótin eru í næsta nágrenni við Sóta Lodge. Þau eru mikill snjóakista og verður markmið dagsins að æfa sig í bestu brekkunum. Leiðsögumaður mun leiðbeina þátttakendum og veita einstaklingsbundna ráðgjöf.
16:00: Koma á Sóta Lodge. Aprés ski, vatnateygjur og flotstund.
18:30: Farið yfir daginn og næsti dagur skipulagður
19:30: Kvöldmatur
Dagur 3
08:00-10:00: Morgunmatur
10:00: Brottför (hádegismatur tekinn með í bakpoka)
10:30: Farið yfir búnað og hann prófaður (kennsla í öryggisþáttum: ýlaskoðun og stutt ýlaleit, notkun á snjóflóðastöng)
11:00: Haldið til fjalla.
16:00: Koma á Sóta Lodge. Aprés ski og sundlaugin opin
18:30: Farið yfir daginn og næsti dagur skipulagður
19:30: Kvöldmatur
Dagur 4
08:00-10:00: Morgunmatur
10:00: Brottför frá Sóta
11:00: Haldið til fjalla. Við finnum bestu brekkur dagsins og njótum lífsins. Nú reynir á nýfengna þekkingu!
14:00: Koma á Sóta Lodge, hægt að nýta sér sundlaugina fyrir brottför.
15:00: Brottför
AFBÓKUNAR- OG ENDURGREIÐSLUSKILMÁLAR
- 80% endurgreiðsla ef afbókað með meira en 7 daga fyrirvara
- 50% endurgreiðsla ef afbókað með meira en 72 klst fyrirvara
- Engin endurgreiðsla ef afbókað með minna en 72 klst fyrirvara
Ef ferðin fellur niður vegna veðurs:
- Er hægt að fá endurgreitt að fullu
- Ferð á aðra dagsetningu
- Verður ferðaplani breytt til að henta veðri betur