Notkunarskilmálar

Samþykki þessara notkunarskilmála er forsenda notkunar á sotitravel.is vefnum. Ef þú samþykkir þá ekki skaltu hætta notkun hans nú þegar.

Óheimilt er að hlaða niður efni vefsins öðruvísi en í vafra til skoðunar eins og vefurinn kemur fyrir. Öll vinnsla á efni vefsins er óheimil. Heimilt er að vísa í síður vefsins á öðrum vefsíðum. Ljósmyndir eða myndbrot á vefnum eru varðar höfundarrétti.

Við notkun á vefnum er hugsanlega spurt um persónulegar upplýsingar. Þessar upplýsingar eru geymdar til að koma þeim áleiðis til viðtakanda og mögulega á meðan á úrvinnslu viðtakanda stendur. Notendur sem vilja ekki að við geymum upplýsingar um þá skulu ekki gefa upp slíkar upplýsingar. Vefurinn notar fótspor (cookies) í margvíslegum tilgangi. Persónulegar upplýsingar eru ekki vistaðar í fótsporum. Nánar er kveðið á um þetta í yfirlýsingu okkar um persónuvernd hér að neðan. Skilmálar þessir geta breyst án fyrirvara en gildandi útgáfa þeirra er ávallt aðgengileg á þessari síðu.

Viðskiptaskilmálar

Innritun: 14:00 – 22:00
Útskráning: 07:00 – 11:00

Afbókun þarf að berast þremur dögum fyrir innritun.
Ef afbókað er með styttri fyrirvara þarf að greiða fyrir eina gistinótt.
Öll uppgefin verð innihalda virðisaukaskatt.

Börn yngri en 2 ára dvelja án endurgjalds á Sóta Lodge. Barnarúm er til reiðu og rúmast eitt í herbergi, en þess er óskað að haft sé samband við móttökuna fyrir komu til að panta barnarúm á herbergið.

Gæludýr eru ekki leyfð.

Við tökum við:
Visa, MasterCard, Maestro, American Express, Diners Club, JCB, Discover og Union Pay.

Við áskiljum okkur rétt til að skuldfæra fyrirfram gistingu á greiðslukort. Bókun á hótelinu telst ekki staðfest nema að búið sé að gefa upp greiðslukortanúmer.

Við heitum viðskiptavinum fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem viðskiptavinur gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá viðskiptavini verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum. Sendingar úr kerfi okkar kunna að nota persónuupplýsingar, s.s. búsetu, aldur eða viðskiptasögu, til að útbúa viðeigandi skilaboð til viðskiptavina. Þessar upplýsingar eru aldrei afhentar þriðja aðila. Viðskiptavinir geta ætíð afskráð sig og þannig neitað okkur notkun á slíkum upplýsingum.

Varnarþing:
Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur Sóta Lodgeá grundvelli ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.

Skilmálar fyrir skipulagðar hópferðir

Trúnaður:

Sóti Lodge heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum. Sóti Lodge getur þurft að nota persónuupplýsingar eins og heimilisfang eða tölvupóstfang, til að senda viðeigandi skilaboð til meðlima síðunnar. Þessar upplýsingar eru aldrei afhentar þriðja aðila. Meðlimir vefverslunarinnar geta ætíð afskráð sig og þannig neitað fyrirtækinu notkun á slíkum upplýsingum.

​Verð og greiðsla:

Tekið er við millifærslum.

Upphæðina má leggja inn á reikning: 0546-26-161200 , kennitala: 691012-1740. Koma þarf fram hver leggur inn, fyrir hvaða ferð og dagsetning þessara ferðs. Að auki þarf að senda afrit af millifærslunni á netfangið

​Bókanir og afbókanir:

Hægt er að bóka ferðir með Sóti Lodge í gegnum heimasíðu eða með tölvupósti á sotilodge@sotilodge.is. Bókanir byggja á fyrstur kemur, fyrstur fær reglunni og fullnaðargreiðsla þarf að liggja fyrir brottför til að tryggja sér pláss á námskeiðum og í dagsferðir. Afbókanir og breytingar á bókunum þarf ávallt að gera skriflega með tölvupósti á netfangið

Staðfestingargjald er 50% af verði ferðar og greiðist þegar ferð er pöntuð. Lokagreiðsla eigi síðar en þrem dögum fyrir brottför.​

Bókanir á námskeið:

Námskeið/ferð/kennsla staðfestist þegar lágmarksþátttaka hefur verið tryggð.

Bókanir í dagsferð:

Dagsferðir eru ferðir sem standa í skemur en sólarhring. Dagsferð staðfestist þegar lágmarksþátttaka hefur verið tryggð.

Afbókanir:
Sóti Lodge áskilur sér rétt til þess að breyta dagskrá ferðar eða aflýsa henni með öllu vegna veðurs eða annarra ófyrirsjáanlegra aðstæðna til þess að tryggja öryggi farþega og starfsfólks. Þá verður haft samband við þá sem hafa skráð sig og þeim boðin inneignarnóta í formi gjafabréfs eða full endurgreiðsla.

Um afbókanir gilda eftirfarandi reglur:

Ef afbókað er:

Þrem dögum fyrir brottför er ferð endurgreidd að fullu.

Afbókun ferðar með styttri fyrirvara en þremur dögum fæst ekki endurgreidd.

Verð og verðbreytingar:
Sóti Lodge leitast við að tryggja endanlegt verð á heimasíðu sinni. Við áskiljum okkur þó rétt til leiðréttinga á verði eða endurgreiðslu ferðar í tilfellum þar sem rangt verð birtist vegna villu í uppsetningu eða af öðrum tæknilegum ástæðum.
Ferð sem er að fullu greidd tekur þó ekki slíkum verðbreytingum og sé ferðin greidd að meiru en hálfu en þó ekki að fullu tekur ferðin verðbreytingum að 50% hluta.

Tryggingar og skildur þáttakenda:

Jafnvel þótt ýtrasta öryggis sé gætt í ferðum fylgir þátttöku í ferðum er óhjákvæmilega einhver áhætta eins og snjóflóðahætta og að ganga í bröttum hlíðum sérstaklega að vetri til. Þátttakendur ferðast ávallt á eigin ábyrgð.

Sóti Lodge tryggir hvorki farþega, útbúnað né önnur verðmæti í ferðum. Þátttakendur skulu ávallt fara eftir fyrirmælum fararstjóra og hvorki stofna sér né öðrum í hættu.
Þátttakendur eru hvattir til að láta vita af undirliggjandi sjúkdómum, ofnæmi eða öðrum vandamálum sem geta haft áhrif á líðan og líkamsástand undir álagi eins og í fjallaferðum.

Afturköllun eða breytingar:
Sóti Lodge áskilja sér rétt til þess að breyta dagskrá ferðar eða aflýsa henni með öllu vegna veðurs eða annarra ófyrirsjáanlegra aðstæðna, s.s. stríðsástands, smitsjúkdómahættu eða verkfalla, til þess að tryggja öryggi farþega og starfsfólks.

Að sama skapi er farþega heimilt að afturkalla farpöntun alferða vegna samsvarandi þátta, s.s. stríðsaðgerða, lífshættulegra smitsjúkdóma eða annarra hliðstæðra tilvika sem hafa afgerandi áhrif á framkvæmd ferðar þegar a.m.k. 14 dagar eru til brottfarar. Í slíkum tilvikum ber ferðaskrifstofu að endurgreiða allt fargjaldið að frádregnu staðfestingargjaldi. Þetta gildir þó ekki ef farþegi hefði mátt sjá fyrir um ofangreinda atburði og ástand er samningur var gerður.

Vandamál:
Komi upp einhver vandamál í ferð skal umsvifalaust gera fararstjóra viðvart sem reynir að greiða úr vandanum og leysa hann á staðnum. Takist það ekki getur farþegi sent skriflega kvörtun um málið til Sóti Lodge eins fljótt og unnt er og í síðasta lagi innan mánaðar frá því að ferð lauk, annars verða hugsanlegar bótakröfur ekki teknar til greina. Komi farþegi ekki umkvörtunarefni sínu á framfæri við fararstjóra meðan á ferð stendur fyrirgerir farþegi rétti sínum til hugsanlegra bóta.

Varnarþing:
Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur Sóta Lodgeá grundvelli ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.

Yfirlýsing um persónuvernd

Vakin er athygli á því að þegar farið er inn á vefsíðu okkar vistast fótspor (e. cookies) í tölvu notandans. Þessi fótspor eru litlar textaskrár sem notaðar eru til þess að bera kennsl á notendur sem hafa komið áður á vefinn og til að greina heimsóknir á vefsíðuna. Aðrar vefsíður eiga ekki að geta lesið upplýsingarnar sem eru geymdar í fótsporinu.

Með því að samþykkja þessa skilmála um notkun á fótsporum er okkur m.a. veitt heimild til þess að safna og greina upplýsingar eins og t.d.:

Fjöldi gesta og fjöldi innlita frá gestum
Lengd innlita gesta
Hvaða síður innan vefsins eru skoðaðar og hversu oft
Tegund skráa sem sóttar eru af vefnum
Hvaða stýrikerfi og vafrar eru notuð til að skoða vefinn
Hvaða leitarorð af leitarvélum vísa á vefinn
Hvaða vefsvæði vísaði notanda á vefinn
Hvenær dagsins vefurinn er skoðaður

Þessar upplýsingar eru notaðar til þess afla vitneskju um notkun á vefnum og hvaða efni notendur hafa áhuga á að skoða. Þannig getum við aðlagað vefinn betur að þörfum þeirra.

Hægt er að breyta öryggisstillingum á flestum vöfrum þannig að þeir taki ekki á móti fótsporum. Einnig á að vera hægt að eyða þeim. Nánari upplýsingar um hvernig það er gert má finna á heimasíðum útgefenda flestra vafra.

Markhópagreining

Við notum tæknilausnir Google til að greina notendahópinn okkar í þeim tilgangi að sinna honum betur. Með því að stilla til Google Ads Settings á vef Google getur þú ákveðið að taka ekki þátt í slíkum greiningum.
Við notum gögn sem safnað er nafnlaust með Google Analytics til þess að bæta þjónustuna okkar.

Við leitumst aldrei við að greina hegðun notenda niður á einstaklinga heldur nýtum þessar upplýsingar aðeins í nafnlausum og almennum tilgangi. Þannig getum við bætt þjónustuna okkar með tímanum.