Draumasvæði fjallahjólamennskunnar
Sóti Summits hefur sett saman eftirminnilegt námskeið fyrir fólk á öllum aldri, sem langar til að kynnast fjallahjólamennsku og upplifa landið fyrir eigin vélarafli. Þátttakendur kynnast alvöru fjallahjólalandsslagi um leið og þeir nema tækni og öðlast reynslu sem nýtist til frekari afreka. Umhirða hjóla og einfalt viðhald verða kennd, sem og leiðarval og hjólatækni.
Nyrsti hluti Tröllaskagans er stórkostlegur áfangastaður fyrir fjallahjólafólk. Fornar ferðaleiðir tengja byggðir og firði og vel mótaðar slóðir fólks og ferfætlinga opna dali og hlíðar fyrir þau sem nú kjósa að ferðast um á nútíma fjallahjólum. Svæðið býður ekki einungis upp á einstaka stíga í fjölbreyttu landslagi, heldur ótrúlegt útsýni yfir sjó og fjöll.
Hlúð er að þreyttum vöðvum og andlegu hliðinni sinnt á Sóta Lodge á kvöldin, þar sem uppnumið hjólafólk nýtur einstaks atlætis, hágæða veitinga og vandaðrar þjónustu.
Innifalið í verði
- Allar máltíðir meðan á dagskrá stendur
-
- Morgunverður að morgni laugardags og sunnudags
- Nesti að hætti hússins á laugardegi og sunnudegi
- Þriggja rétta kvöldverður við komu á föstudegi og að kvöldi laugardags
-
- Leiðsögn reynds fjallahjólaleiðsögumanns
- Tvær fjallahjólaferðir (4-6 tímar hvor ferð)
- Gæðagisting á Sóta Lodge í tvær nætur
- Aðgangur að Barðslaug, heitum potti og sánu
- Skutl með bíla eins og þörf er skv. dagskrá
Ekki innifalið í verði
- Áfengi
- Slysatrygging
- Fjallahjól og búnaður tengdur því
Hvað á að koma með
- Fulldempað fjallahjól
- Fjallahjólahjálm (helst með kjálka, má vera hægt að taka hann af)
- Hnéhlífar og bakbrynju
- Sólgleraugu
- Hjólaskó/háa gönguskó
- Léttan bakpoka
- Varahluti fyrir hjól (keðju, slanga í dekk)
- Vind- og vatnsheldan jakka
- Vind- og vatnsheldar buxur
- Ullarnærföt
- Hanska
- Vatnsflösku
- Sólarvörn
Þessi ferð er eingöngu í boði fyrir hópa, að lágmarki 6 manns.
Sendið fyrirspurn gegnum formið hér til hægi eða á info@sotisummits.is og við finnum dagsetningu sem hentar þér og þínum hópi!
Verð:
- 99.500 kr. á mann m.v. tvo í herbergi
- 129.500 kr. fyrir einstaklingsherbergi
Fyrir hverja er ferðin?
- Þessi ferð hentar öllum þeim sem að vilja auka kunnáttu og getu á fjallahjóli.
Dæmi um dagskrá
Dagur 1
16:00: Mæting á Sóta Lodge
17:00: Fundur með leiðsögumanni. Farið yfir komandi hjóladaga /búnað þátttakenda og styrkleika.
18:00: Sundlaug og slökun
19:30: Kvöldmatur
Dagur 2
08:00-10:00: Morgunmatur
10:00: Brottför (hádegismatur tekinn með í bakpoka). Keyrt á Ólafsfjörð og Lágheiði hjóluð í Fljótin.
16:00: Koma á Sóta Lodge, Barðslaug opin gestum.
17:00: Vatnateygjur og flotstund
19:30: Kvöldmatur
Dagur 3
08:00-10:00: Morgunmatur
10:00: Brottför frá Sóta, farangur skilinn eftir í bílum eða í geymslurými. Hjólað á Siglufjörð úr Fljótum og yfir Siglufjarðarskarð tiltaka.
15:00: Gestum boðið upp á að kíkja í Barðslaug fyrir brottför.
AFBÓKUNAR- OG ENDURGREIÐSLUSKILMÁLAR
Þátttakendur greiða 20% óafturkræft staðfestingargjald við bókun ferðar. Eindagi fullnaðargreiðslu er fjórum vikum fyrir upphaf ferðar. Að öðru leyti gilda eftirfarandi skilmálar:
- 80% endurgreiðsla ef afbókað með meira en 7 daga fyrirvara
- 50% endurgreiðsla ef afbókað með meira en 72 klst fyrirvara
- Engin endurgreiðsla ef afbókað með minna en 72 klst fyrirvara
Ef ferðin fellur niður vegna veðurs:
- Er hægt að fá endurgreitt að fullu
- Ferð á aðra dagsetningu
- Verður ferðaplani breytt til að henta veðri betur