Saga íslenskrar byggðar markast af þrautseigju, æðruleysi og á stundum af fífldjarfri þrjósku. Hvergi er það bersýnilegra en við nyrstu strandir Tröllaskaga.

Komdu með okkur í snjóþrúguferð í Héðinsfjörð og spreyttu þig á skemmtilegum vetrarferðamáta með Sóta Summits.  Á leiðinni segjum sögur af þeim oft erfiðu lífskjörum sem réðu örlögum og mótuðu sögu héraðsins á 20. öld.

Á uppgangstímum Siglufjarðar í upphafi 20. aldar hélt byggðin í Héðinsfirði áfram einkennum sínum, með smábúskap í einangruðum firði þar sem óblíð veðuröflin gátu umturnað lífi fólks í einu vetfangi. Íbúar nyrst á Tröllaskaga fluttust gjarnan milli fjarða til að leita að ögn betra lífsviðurværi og saga nágrannabyggðana er samtvinnuð gegnum fólkið og fjölskyldurnar sem hérna bjuggu.

Snjóþrúgur – skemmtilegur ferðamáti fyrir alla!

Snjóþrúgur eru hinn fullkomni ferðamáti fyrir þau sem vilja kanna nýjar lendur að vetri á auðveldan og aðgengilegan máta. Þetta er frábær leið til að njóta hreyfingar og útivistar í fallegri náttúru og aðgengileg fyrir öll aldurs- og getustig. Eina skilyrðið er að þú hafir gaman af gönguferðum og útiveru.

Við kynnum ykkur notkun snjóþrúga í upphafi og höldum svo sem leið liggur um söguslóðir í fögru vetrarlandslaginu. Eftir upphafskynninguna er bara að labba af stað – og njóta.

 

Dagsetningar:

Þriðjudaga, fimmtudaga og sunnudaga klukkan 10:00

Hægt er að bóka sérferðir alla daga sé þess óskað

Fjögurra þátttakenda lágmark í ferðir til að tryggja brottför

 

Verð:

Fullorðnir 8.900 kr

Börn (8 – 14 ára) 4.900 kr

 

Innifalið í ferð:

Heimavanur leiðsögumaður
Snjóþrúgur og stafir
Heitur drykkur

Útbúnaður sem þarf:

Traustir göngu- eða vetrarskór
Hlýr, lagskiptur fatnaður
Vettlingar og hattur
Sólgleraugu eða skíðagleraugu