Upplifðu ógleymanlegan þyrluskíðadag vorið 2024!

Það er fátt sem jafnast á við að skíða niður ósnortna, snævi þakta brekku með útsýni yfir Tröllaskaga og til Norður Íshafsins. Fljúga svo upp að nýju og endurtaka dýrðina aftur- og aftur. Sóti Summits í samvinnu við Summit Heliskiing bjóða vorið 2024 upp á sérstakt tilboð fyrir ævintýraþyrsta Íslendinga og aðra sem vilja upplifa ógleymanlegan þyrluskíðadag á fjöllum.

Skíðaleiðsögufólkið okkar þekkir hverja brekku og tind á skíðasvæðinu okkar og yfirleiðsögumaðurinn, Leifur Örn Svavarsson, leggur áherslu á að tryggja skemmtun og umfram allt öryggi gesta okkar.

Dagurinn þinn

Ferðin hefst á Sóta Lodge í Fljótunum fögru klukkan 09:00. Sóti Lodge er í um 30 mínútna akstursfjarlægð frá Siglufirði og þar hittir þú leiðsögumanninn þinn og þið farið yfir öryggisreglur fyrir þyrluflug og skíðun. Við vinnum með Norðurflugi, reyndustu þyrluþjónustu Íslands. Þau nota Astar B2 þyrlur, sem taka fjóra gesti í sæti ásamt leiðsögumanni.

Um hádegisbil ætlum við að staldra við til að njóta hádegisnestis á meðan við virðum fyrir okkur stórbrotið útsýnið allt um kring. Ánægð og endurnærð skellum við okkur aftur á skíði og endum svo daginn á Sóta Lodge þar sem snarl og drykkir eru á boðstólum.

Innifalið

1 klst flugtími (eða 8 ferðir) yfir daginn

Skíði og bindingar (gæða Blizzard frískíði).

Reyndur fjallaskíðaleiðsögumaður

Öryggiskynning (snjóflóðahætta, notkun og leit með snjóflóðaýli)

Snjóflóðaöryggisbúnaður (bakpoki m/loftpúðum snjóflóðaýlir, skófla og stöng) – komdu með þinn eigin ef þú vilt!

Hádegisverðarpakki

Après skíðasnarl á Sóti Lodge

 

Tilboðsverð fyrir dagsferð í þyrluskíðun vorið 2024

165.000 kr.

Bættu við gistingu á Sóta Lodge – frá 24.750 kr á mann í tvíbýli með morgunverði og þriggja rétta kvöldverði!
Hafið samband við okkur til að bóka: info@sotisummits.is eða sími 5512200.

 

Dagsetningar í boði

  1. apríl – 12. maí 2024

Einkaferð

Viltu skipuleggja einkaferð fyrir hópinn þinn? Sendu línu á powder@summitheliskiing.is

 

Hverjum hentar þessi ferð?

Þessi ferð hentar vönu skíðafólki í góðu líkamlegu ástandi. Maí er skemmtilegur fjallaskíðatími, en snjóaðstæður geta verið breytilegar og gott að vera viðbúin því.

 

Mikilvæg athugasemd fyrir vefbókanir!

Við bókun er greitt 20% óafturkræft staðfestingargjald. Greiðslutengill vegna eftirstöðva verður sendur út þremur vikum fyrir komu.