Magnað fjallaskíðanámskeið á Tröllaskaga
Fjögurra daga námskeið þar sem farið verður í skíðun utan troðinna skíðabrauta, helstu atriði í fjallaskíðun og snjóflóðafræðslu.
Gist er á hótelinu Sóta Lodge í Fljótum í Skagafirði í góðu yfirlæti og fullu fæði, þriggja rétta kvöldverðir, morgunmatur og hádegismatur framleiddur úr hágæða hráefni úr héraði.
Leiðbeinendur eru Sara Hlín Sigurðardóttir skíðakennari og Leifur Örn Svavarsson leiðsögumaður og snjóflóðasérfræðingur.
Þátttakendur geta valið um tvo styrkleikaflokka:
– Annarsvegar námskeið fyrir lítið vana skíðamenn sem þurfa að bæta almenna skíðafærni um leið og stigin eru fyrstu skrefin á fjallaskíðum.
– Hins vegar námskeið fyrir vana skíðamenn sem vilja bæta getuna í skíðun utan troðna skíðabrauta og læra að ferðast af öryggi um fjalllendi.
Um námskeiðið
Mæting norður á Sóta lodge kl 13 á mánudegi og námskeiðinu líkur á fimmtudags eftirmiðdegi. Hægt er að bóka auka nótt á Sóti logde á fimmtudagskvöldinu sé þess óskað. Fyrir hádegi aðra daga fer bókleg kennsla fram innan dyra en eftir hádegisverð taka verklegar útiæfingar við. Verklegar æfingar fara fram út frá skíðasvæðum og eru skíðalyftur nýttar til þess að fá sem mesta skíðun utan brauta með lítilli göngu.
Bæði skíðakennari og skíðaleiðsögumaður eru með hópnum allann tímann og er hópnum skipt upp þannig hægt sé að gefa hverjum og einum persónulega tilsögn.
Innifalið:
- Gisting í uppábúnum rúmum í 2 manna herbergjum í 3 nætur, frá mánudegi til fimmtudags.
- Kvöldmatur á mánudegi, fullt fæði með morgunmat, hádegismat og kvöldmat þriðjudag og miðvikudag. Morgunmatur og hádegismatur á fimmtudegi.
- Skíðakennsla og leiðsögn.
- Aðgangur að þeim skíðasvæðum sem notuð eru í útikennslu.
Ekki innifalið:
- Akstur. Þáttakendur þurfa sjálfir að koma sér á staðinn sem og á æfingar seinnipart dags.
- Nauðsynlegur búnaður, s.s. fjallaskíði og skinn, fjallaskíðaskór, stafir, hjálmur, snjóflóðabakpoki, snjóflóðaýlir, stöng og skófla. Boðið er upp á leigu á nýjum fjallaskíðum, skinnum og stöfum á staðnum en annað þurfa þáttakendur að kaupa eða leigja fyrir ferðina. Helstu útivistarverslanir landsins bjóða upp á leigu á búnaði.
ÞETTA NÁMSKEIÐ ER EKKI Á DAGSKRÁ 2023 – SENDIÐ FYRIRSPURN VEGNA 2024!
Mögulegt er að bæta við fleiri dagsetningum fyrir sex manna hópa eða stærri, sé þess óskað má senda tölvupóst á info@sotisummits.is eða skiljia eftir skilaboð hér til hliðar.